|
Pokasjóður,
sem áður hét Umhverfissjóður verslunarinnar
úthlutar styrkjum til verkefna sem heyra undir almannaheill.
Má þar nefna verkefni eins og umhverfismál,
menningarmál, listir, íþróttir og mannúðarmál.
Pokasjóður
fær tekjur af sölu plastburðarpoka í verslunum
en merki á haldi hvers poka segir til um hvort verslunin
greiðir í sjóðinn eða ekki. Í dag
greiða 160 verslanir í sjóðinn og eru þær
staðsettar um allt land.
Pokasjóður skiptist í tvær deildir, þ.e.
annars vegar sameignarsjóð og hins vegar séreignarsjóð.
Í sameignarsjóð greiðir hver verslun sem tekur
þátt í sjóðnum 60% af framlagi sínu
og er úthlutað úr þeim hluta í nafni
Pokasjóðs einu sinni á ári eða oftar
ef svo ber undir. Í séreignarsjóð greiðir
verslunin 40% af framlagi sínu og úr þeim sjóði
úthlutar hver verslun eða verslunarfyrirtæki.
Í samþykktum
Pokasjóðs verslunarinnar segir eftirfarandi um markmið
sjóðsins:
Til
baka
|